Veldu námsgrein
Veldu aldursstig
Reykjavíkurborg
25. ágúst 2010 11:03

Haustdagskrá Náttúruskólans

Námskeið haustsins eru hafin í Náttúruskólanum.  Dagskrá haustsins er fjölbreytt eins og venjulega og allar nánari upplýsingar er að finna hér. 

Byrjað er að taka við skráningum.

 

 
2. júní 2010 13:48

Líður að lokum vorannar í Náttúruskólanum

Aldrei hafa fleiri og fjölbreyttari námskeið verið á döfinni í Náttúruskólanum en nú í vor.

Hér eru nokkrar myndir af því sem hefur farið fram:

 

Svona gerum við:  Steinahlíð - Útileikir og tilraunir.

Í lok apríl tók Steinunn í Steinahlíð á móti fríðum flokki kennara á námskeiðinu Útileikir og tilraunir. Námskeiðin í þessari námskeiðaröð voru ný af nálinni og fólust í því að nokkrir leikskólar, sem hafa náð góðum árangri í útikennslu og umhverfismennt, buðu þátttakendum að kynnast starfi sínu og verkefnum.

 

Sjálfbær útikennslusvæði

Í Björnslundi var haldið námskeiðið Sjálfbær útikennslusvæði í samstarfi við Skóla á grænni grein, Lís og Háskóla Íslands. Þar kynntust þátttakendur m.a. því hvernig meta má ástand gróðurlendis og stuðla þannig að sjálfbærri og heilbrigðri framvindu útikennslusvæða, þrátt fyrir sívaxandi notkun þeirra.

 

Svona gerum við: Reynisholt - Jóga og leikir.

Aðalheiður Stefánsdóttir í Reynisholti fræddi þátttakendur um hvernig þeim hefur tekist að gera jóga að miðpunkti útikennslunnar.  Námskeiðið fór fram í nýjum útikennslulundi leikskólans í lok maí og sumarið lék við höfuðborgarbúa.

 

 

Yngstu náttúrufræðingarnir

Í Grasagarðinum í Laugardal var m.a. setið við að sauma grashausa en auk þess leystu þátttakendur ýmis verkefni um veður, plöntur og dýr.

 

 
26. apríl 2010 09:26

Vornámskeið í fullum gangi

Mikið er um að vera í Náttúruskóla Reykjavíkur um þessar mundir og fjölmörg námskeið fara fram.  Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af námskeiðum síðustu tveggja vikna.

Leikir og samvinnuþrautir fóru fram í Nauthólsvík undir stjórn Óttars Hrafnkelsskonar.

 

 

Útieldun er eitt vinsælasta námskeið Náttúruskólans og þar er alltaf mikil stemmning.

 

 

Frá námskeiðinu Stærðfræði og útikennsla sem fór fram í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal.

 

Þátttakendur glíma við verkefni um líffræðilegan fjölbreytileika og fá leiðbeiningar hjá Hirti Þorbjörnssyni, safnverði í Grasagarði Reykjavíkur.

 
25. mars 2010 10:25

Earth Hour - Slökkvum ljósin!

 

Næstkomandi laugardag munu þúsundir manna taka afstöðu með baráttunni gegn loftslagsbreytingu með því að einu að slökkva ljósin í eina klukkustund til stuðnings Jörðinni.

 

meira...
 

 
22. mars 2010 14:41

Ný námskeið á vormisseri

Nú hefur stundatafla Náttúruskólans fyrir vormisseri 2010 verið send út til allra grunn- og leikskóla borgarinnar.

Upplýsingar um þau námskeið sem í boði eru á vormisserinu má finna hér og skráning er hafin!

 

 

Fjölmargar nýjungar eru í boði s.s. sérstök námskeið í námskeiðaröðinni Svona gerum við, ný umhverfismenntanámskeið í takt við nýja menntastefnu og hressileg útikennslunámskeið.

 
3. mars 2010 08:11

Námskeið á vormisseri

Á næstu vikum verður stundatafla Náttúruskólans á vormisseri 2010 send leik- og grunnskólum borgarinnar.  Hún verður á sama tíma auglýst hér á vef Náttúruskólans.

 

Að venju er margt spennandi í boði í námskeiðum Náttúruskólans.  Ekki færri en 15 námskeið eru á stundatöflu vorannarinnar og margar nýjungar í boði.

 

Skráning á námskeiðin þarf að berast rafrænt og verður það auglýst nánar þegar stundataflan verður birt.

 
13. nóvember 2009 14:19

Jólastemmning í skóginum

Nú er báðum jólanámskeiðunum lokið og óhætt er að segja að það hafi skapast frábær stemmning í rjóðrinu við Elliðavatn.

Meðfylgjandi myndir eru af eldamennskunni en þátttakendur framreiddu gotterí af glóð með miklum myndarskap.

 

meira...
 

 
21. október 2009 12:11

Jól í útiskóla

Nú styttist í síðustu námskeið Náttúruskólans á haustmisserinu.  Í byrjun nóvember eru á döfinni ný námskeið sem nefnast Jól í útiskóla.

Fullbókað er á leikskólanámskeiðið en örfá pláss eru laus á námskeiðið 4. nóvember nk. sem ætlað er grunnskólakennurum.

 

meira...
 

 
25. september 2009 11:29

Earth Overshoot Day 25.09.2009

19. ágúst 2009 08:41

Námskeið á haustönn

8. júní 2009 10:17

Vorönn að ljúka

27. apríl 2009 10:04

Varðliðar umhverfisins 2009

24. mars 2009 11:23

Aðalfundur Samtaka náttúru- og útiskóla (SNÚ)

20. mars 2009 13:15

Stærðfræði og útikennsla 31. mars nk.

10. mars 2009 08:54

Útikennslunámskeið í Bergen í júní

27. febrúar 2009 13:48

Vistfræðilegt fótspor (Ecological footprint) - 10. mars nk.

24. febrúar 2009 13:56

Sjálfbær þróun 2. mars nk.

19. febrúar 2009 12:20

Stundatafla vorannar 2009

5. febrúar 2009 09:44

Ute är Inne - Áhugaverð ráðstefna um útinám

29. janúar 2009 13:14

Nýr samstarfssamningur um Náttúruskóla Reykjavíkur

12. janúar 2009 11:01

Varðliðar umhverfisins 2009

19. desember 2008 14:42

Gleðileg jól!!

4. desember 2008 13:34

Æ fleiri skólar velja útikennslu

24. nóvember 2008 12:29

Námskeiðum lokið á haustönn


eldri fréttir

 
Náttúruskóli Reykjavíkur, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík    -    natturuskoli@reykjavik.is    -    www.natturuskoli.is